Ég er ennþá ég

Konfektmolar fyrir augun!


Konfektmolar fyrir augun!
 
Fimmtudaginn 13. nóvember kl. 19.00 verður útgáfuteiti Elds Ísidórs og Sheila Michelle á Sólon. Eldur hefur búið og starfað í London undanfarin ár en er kominn heim til Íslands til að kynna bók sína ,,Ég er ennþá ég".

Með honum í för er ljósmyndarinn Sheila Michelle en þau hafa unnið saman að nektardagatali Elds sem ber titilinn ,,Ég er nakinn!"

Nektardagatalið hóf Eldur að gera eftir áeggjan vina sinna á hinni alræmdu Facebook en vatt upp á sig og hefur svo miklu djúpstæðari merkingu núna.

Sheila-Michelle mun jafnframt opna ljósmyndasýningu sína á nektarmyndum af Eldi en samstarf þeirra hefur skilað af sér sannkölluðum konfektmolum sem hægt er að njóta skammarlaust.

Komið og sjáið Eld í allri sinni dýrð og nekt. Fyrir þá sem hafa áhuga er hann eflaust til í að árita dagatöl og bækur. Tilvalin og umdeild jólagjöf! Ljósmyndir Sheilu -Michelle verða til sölu en athugið sýningin mun einungis vera uppi í 4 daga. "Nammipokar" í boði Durex á boðstólnum. Fyrstir koma, fyrstir fá. Öryggið á oddinn, og nektina í fyrirrúmi!

Fréttatilkynning:

Eins og fram kemur í boðskortinu verður útgáfuteiti/ljósmyndasýning á Sólon þann 13. nóv
.

Sjaldgæfur viðburður í höfuðborginni þar sem nektarmyndir af rithöfundi verða afhjúpaðar samhliða því að viðstaddir fagna útkomu bókarinnar "Ég er ennþá ég". Nektarmyndirnar prýða jafnframt dagatal sem er einnig gefið út af rithöfundi.

Rithöfundurinn Eldur Ísidór hefur verið búsettur í Lundúnum síðustu ár. Hann greindist HIV-jákvæður fyrir nokkru síðan og fjallar bókin um fyrsta árið í lífi hans eftir greininguna. Hvernig bregst fjölskylda við, vinir, kunningjar og jafnvel atvinnurekandi ?

Dagatalið og bókin koma saman út til að sýna almenningi að í raun er einfaldara að afhjúpa líkama sinn heldur en að afhjúpa söguna og segja frá HIV-smiti, sem því miður enn, er sjúkdómur í viðjum fáfræðslu og fordóma.

Höfundur er væntanlegur til Íslands um helgina og mun vera staddur á landinu í rúma viku.

Lundúnum þann 6. nóvember 2008

konfektmolar


Eldur Ísidór, höfundur bókarinnar og dagatals/ www.eldurmedia.com
(verður live um helgina)
Sheila-Michelle Rieke, ljósmyndari/
www.wanted-pictures.com
 
PS. Minni á 1. des; alþjóðlegur dagur HIV/Alnæmis

 

Stöðvum útbreiðslu HIV, en ekki fólkið sem lifir með því !

AIDS CLOCK

© 2002 - 2008 HIV-info á Íslandi
Þessi vefur er styrktur af Stefna Ehf

Nýjustu fréttir

Lyfjaupplýsingar á Íslensku
Hér færðu smokka á netinu

Mynd augnabliksins

christmashouse.jpg

Heimsóknir

Í dag: 3513
Samtals: 720145

Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning